Esterarbók

Nú er sumar

Posted by: Ester on: föstudagur, 19 júní, 2009

Bylting lá í lofti vorið 2009 .. söng Bubbi .. en nú er komið sumar og við erum bara glöð og hamingjusöm og elskum friðinn :)
Ég hef fátt að segja, enda orðin fámál mjög.  Er þó í syngjandi kátu skapi, enda Þórsmörk á næsta leyti og söngur við varðeldinn.  Brátt skal haldið í sumarfrísútilegur á græna risanum með krakkagengið í aftursætinu og kærastann mér við hlið, enda hefur útlandið verið afgreitt þetta árið (je t’ aime Paris!) og kominn tími á að gera óbyggðum Íslands góð skil. 

Blogg er ekkert spennandi lengur.  Grillveislur eru það hins vegar og ganga  yfir Laugavegshálendið fær mig til að kikna í hnjánum.  Og þó engin séu jólin í bráð vil ég samt segja: verið góð við hvert annað en þó mest við ykkur sjálf og munið að reiði og ofsi, bræði og læti, leysa engan vanda!

Nú er sumar,
gleðjist gumar
gaman er í dag.
Brosir veröld víða,
veðurlagsins blíða
eykur yndishag,
eykur yndis hag.

Látum spretta
spori létta,
spræka fáka nú.
Eftir sitji engi,
örvar víf og drengi
sumarskemmtun sú,
sumarskemmtun sú.

Tíminn líður
tíminn bíður
sælan sólskinsdag.
Yndi er úti á grundum,
yndi, heim þá skundum
seint um sólarlag,
seint um sólarlag.

Slátra?

Posted by: Ester on: miðvikudagur, 8 apríl, 2009

Ég hef hvorki nennu til né áhuga á því að blogga. Tilveran kemst öll fyrir á facebook-síðu. Það hlýtur að koma að því bráðlega að ég drepi þetta svæði hér – oh, hvílíkt vald.

Fer annars til Akureyrar um páskana komandi.  Allir verða á AK um páskana.  Líka ég!  Og brátt bregð ég mér til Parísar .. loksins. Stundum fer lífið eins og maður ætlaði, sei sei já. 

Bið ykkur vel að lifa og góðar stundir öll þarna úti.

Heilræði

Posted by: Ester on: fimmtudagur, 19 febrúar, 2009

Sá sem tyllir sér á tá, stendur ekki stöðugt; þeim sem stikar stórum, veitir örðugt um ganginn. Sá sem skreytir sjálfan sig, ljómar ekki. Sjálfsánægja veitir ekki upphefð, né sjálfshælni verðleika. Sá sem upphefur sjálfan sig, ber ekki af öðrum.

(Lao-Tse, Bókin um veginn)

Farsi

Posted by: Ester on: föstudagur, 23 janúar, 2009

Tilveran er eitthvað svo óraunveruleg þessa dagana. Reiði, gremja, ótti, óöryggi, heift, vantrú, offors og dvuð má vita hvað og hvað og hvað.
Ég held að við séum stödd í sápuóperuhandriti Hollywood-pródúsenta!

Að hverjum degi loknum þakka ég fyrir að minn micro kosmós sé enn stöðugur og nokkurn veginn ósnertur af þessum djöfulgangi sem dunið hefur yfir sl. mánuði. Og ég bið þess í leiðinni að svo megi verða áfram, sama hvað á bjátar í macro kosmósnum.

Síðársganga

Posted by: Ester on: mánudagur, 29 desember, 2008

Gekk á Helgafellið (inn af Heiðmörk) í gær í félagsskap við 5. Gengum upp gilið og svo niður í gegnum gatið hinum meginn við fjallið, síðan í kringum það, yfir hraunið og aftur að bílastæðinu. Í allt u.þ.b. 2 tíma hreyfing. Gott að brölta eftir jólaletina og reyna á læri og lungu.
Ætla að verða brjálæðislega æst á gamlárs og sprengja í burtu alla illa ára ársins 2008 um leið og ég sprengi upp gat (og genvej) inn í nýtt árið 2009. Það eina sem ég óska mér fyrir næsta ár en áframhaldandi góð heilsa mín og minna nánustu og að þeir sem ég elska fái frið frá sísuðandi áreiti tilverunnar.

GLEÐILEG JÓL

Posted by: Ester on: mánudagur, 22 desember, 2008

Ég óska þeim fáum sem enn hingað kíkja inn
Gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
Verið nú góð, glöð og gjafmild á sjálf ykkur.

christmascandlelights

Saga blýants

Posted by: Ester on: föstudagur, 12 desember, 2008

A boy was watching his grandmother writes a letter. At one point, he asked:
‘Are you writing a story about what we’ve done? Is it a story about me?’
His grandmother stopped writing her letter and said to her grandson: ‘I’m writing about you, actually, but more important than the words is the pencil I’m using. I hope you will be like this pencil when you grow up.’
Intrigued, the boy looked at the pencil. It didn’t seem very special.
‘But it’s just like any other pencil I’ve ever seen!’
‘That depends on how you look at things. It has five qualities which, if you manage to hang on to team, will make you a person who is always at peace with the world.

‘First quality: you are capable of great things, but you must never forget that there is a hand guiding your steps. We call that hand God, and he always guides us according to his will.

‘Second quality: now and then, I have to stop writing and use a sharpener. That makes the pencil suffer a little, but afterwards, he’s much shaper. So you, too, must learn to bear certain pains and sorrows, because they will make you a better person.

‘Third quality: the pencil always allows us to use an eraser to rub out any mistakes. This means that correcting something we did is not necessarily a bad thing; it helps to keep us on the road to justice.

‘Fourth quality: what really matters in a pencil is not its wooden exterior, but the graphite inside. So, always pay attention to what is happening inside you.

‘Finally, the pencil’s fifth quality: it always leaves a mark. In just the same way, you should know that everything you do in life will leave a mark, so try to be conscious of that in your every action.’

Úr bókinni Like the flowing river e. Paulo Coehlo

Lítil saga sem vekur mann til umhugsunar…

Posted by: Ester on: föstudagur, 5 desember, 2008

Dag einn bað kennari nemendur sína að skrifa nöfn bekkjarfélaganna á blað. Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu og hafa auða línu á milli. Síðan bað hún nemendur sína að hugsa um það besta um hvern og einn og skrifa það fyrir neðan nafnið. Þegar nemendur fóru úr tíma skiluðu þau blöðunum til kennarans sem fór með þetta heim og bjó til lista yfir hvern nemanda og safnaði saman því sem  bekkjarfélagarnir höfðu skrifað. Síðan fengu nemendurnir þetta í hendurnar daginn eftir. Þegar þeir lásu þetta urðu þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað. Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir að þeir skiptu svona miklu máli. Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín á milli eða við foreldrana en þetta hafði tilætlaðan árangur. Nemendurnir urðu ánægðari með sig og aðra í bekknum, þeim leið betur.
Lífið hélt áfram.
Mörgum árum seinna lést einn nemendanna sem hét Magnús og kennarinn ákvað að vera viðstaddur jarðarförina. Einn vinur hins látna gekk til hennar og spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans og sagði að Magnús hefði talað mikið um hana. Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og vildu sýna henni svolítið. Þau höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og var það listinn með öllu jákvæðu atriðunum frá bekkjarfélögunum sem kennarinn hafði fengið honum fyrir mörgum árum. “Þakka þér fyrir að gera þetta, því eins og þú sérð þá skipti þetta hann miklu máli” sagði móðir Magnúsar.
Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði fylgt þeim öllum gegnum lífið og skipt þá mjög miklu máli. Þetta var eitt af því sem þeim þótti vænst um. Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist hún niður og grét, bæði syrgði hún Magnús og svo var hún hrærð yfir því að hafa snert nemendur sína með þessu uppátæki.
Flest okkar hegðum við okkur þannig eins og að við höfum gleymt því að lífið endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur verður.Þess vegna bið ég þig að segja við þá sem þér þykir vænt um hvað þeir séu þér mikilvægir og eigi sérstakan stað í hjarta þér.
Gerðu það oft áður en það verður of seint.

Gouda í uppáhaldi?

Posted by: Ester on: þriðjudagur, 18 nóvember, 2008

Það var gott að komast í burtu úr þunganum á Íslandi, þó ekki væri nema í 3 daga.  Dýrt samt, að versla allar nauðsynlegar ferðaþurftir fyrir lága krónu í landi þar sem evran ræður ríkjum. 

Amsterdam, borgin sem byggð er í kringum Amstel ánna.  Gnægð af góðum bjór, hörðum ostum og hrognamáli.  Að ógleymdu hassinu. 
Heimsótti þar nákominn ættingja sem ég hef aldrei hitt og varð ríkari af sjálfsskilningi fyrir vikið.

Kertastjaki fyrir Baun

Posted by: Ester on: þriðjudagur, 18 nóvember, 2008

Hann er svo sannarlega fagur, þessi handsmíðaði sem ég býð.  Bræddur til af gullsmið á Suðurnesjunum.  Þú gerir ekki betri kaup á Eyrinni!

kertastjaki-2

Volatile & persistent, even fluctant like mercury.

Viljirðu eiga við mig persónuleg samskipti máttu skrifa mér póst og senda á esterester@visir.is

Innkomnir gestir samtals

  • 25,052 talsins

Færsludagar

júlí 2009
M Þ M F F L S
« jún    
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

a

Fyrir forvitna